Seinasti dagurinn

Brjálaður hausverkur að pakka. Loksins er það búið. Fjórar troðfullar töskur og hjól bara á mig og Erik. Hrefna er líka með tvær töskur og var að gubba því útúr sér að önnur þeirra væri stækkanleg. Við tókum þá nokkra hluti úr "henda/skilja eftir" bunkanum og tróðum í hennar.

Í gær versluðum við eins og við værum í spretthlaupi. Ég og Hrefna vorum báðar með lista og við hlupum í gegnum hann. Klukkan 2 áttum við Hrefna tíma í klippingu og þá fór Erik heim með pokahrúgurnar. Klukkan 4 var haldið áfram þangað til við hittum Jakob og Andreu á sushistaðnum til að kveðja hann.  

Í dag fórum við í rússíbanagarð. Við hlökkuðum geðveikt til. Eftir þrjár rússíbanaferðir vorum við hins vegar græn í framan. Við fengum okkur smá kók og hálfa samloku og sumir ældu pínulítið í munninn á sér. Sem betur fer var garðurinn meira en rússíbanarnir, hann var líka dýragarður -eitthvað sem við vissum ekki. Við sáum geðveika tígrisdýrasýningu, skriðdýr, ljón og hákarla. Eftir það vorum við tilbúin í tvo geðveikustu rússíbanana sem við höfðum geymt. Þeir voru geðveikir, annar á góðan hátt og hinn svona "hrista sundur á manni hausinn, heilahristingur og æla". Þennan góða fórum við tvisvar í.

Enginn ferðalanganna kannaðist við þessa veiku maga. Við höldum að þetta hafi verið hitinn í bland við ferðirnar. Það var eitthvað langt yfir 30 gráðum og maður var fljótandi.

Núna erum við að reyna að ná okkur niður eftir kvíðaköstin við pökkunina. Við sjáumst/heyrumst eftir klukkan 6 á fimmtudagsmorgunn.

C'ya, wouldn't wanna be'ya.

B out


Dagarnir síðan Hrefna kom...

Við fórum þrjú til Napa á fimmtudag og vorum eina nótt. Í Napa rákumst við fyrir tilviljun á slatta af outlettum. Við gerðum kostakaup í Kenneth Cole og Banana Republic. Svo fórum við á tvær vínekrur og smökkuðum þangað til við fengum hausverk og ógeð á víni. Við náðum hins vegar ekki að verða mjög full. Lítið í einu sjáið þið til. Við gistum á geðveikt næs móteli með sundlaug í garðinum sem við nýttum vel daginn eftir og grilluðum okkur soldið.

Um kvöldið hittum við Jakob og Andreu sem höfðu komið til San Francisco kvöldið áður. Við versluðum svolítið og borðuðum svo á Cheesecake Factory. Við borðuðum okkur södd og Bylgja, Erik og Hrefna tóku hvert sína sneiðina af ostaköku heim með sér og borðuðu þær í morgunmat daginn eftir :) 

Dagurinn fór allur í verslunarferð en var brotinn upp með bíóferð seinnipartinn. Þegar heim var komið fengum við okkur afganginn af kökunum og heilsuðum upp á vini okkar Will og Grace. Bylgja og Hrefna settust fyrir framan sjónvarpið með alla fatapokana frá síðustu dögum. Eftir að allt var  tekið upp og raðað komust þær að því að þær hefðu ekki keypt nærri nóg. Á morgun stendur til að fara í massaverslunarferð.

Í dag fórum við hins vegar fimm saman í hjólaferð. Við fórum yfir Golden Gate brúna og til Sausalito sömu leið og Holtsgötufjölskyldan fór fyrir þremur vikum upp á dag. Við erum að raða öllum í sturtuna núna og hittum svo Jakob og Andreu í chinatown í kvöldmat.

Okkur langar ekkert heim en við komum samt sem áður á fimmtudagsmorgun.


The Rock

Í dag erum við búin að vera mega dugleg. Við fórum í garðinn og spiluðum tennis og lágum í sólbaði. Svo fórum við og skiptum einum skóm og svo heim að borða og svo á hjólinu á bryggju 33 þar sem við tókum ferjuna út í Alcatraz.

Alcatraz var mjög skuggalegur staður. Við lærðum heilmikið um sögu staðarins með því að horfa á mynd frá Discovery. Þar kom meðal annars fram að indíánar náðu yfirráðum yfir eyjunni í 19 mánuði á 7. áratugnum. Indíánarnir voru flestir hátt í þúsund á eyjunni í mótmælaaðgerðum sínum gegn Sámi frænda. Þeir buðu opinberum starfsmönnum að kaupa eyjuna á 24 dollara virði af glerperlum og öðru glingri líkt og hvíti maðurinn borgaði fyrir Manhattan á sínum tíma. Þeir sögðust hafa valið sér Alcatraz sem nýtt heimili vegna þess hvað það minnti á verndarsvæði indíána; einangrað, vatns og matarlaust og óræktanlegt.

Go indians! Á byggingunum á eyjunni er sums staðar veggjakrot þar sem indíánar eru boðnir velkomnir.

Við vorum búin að lesa í bókinni okkar að Alcatraz var opnað sem publicity stunt til að ríkisstjórnin gæti sýnst ströng í baráttu gegn glæpum. Fangelsið var hins vegar algjört flopp og pissaði peningum. Nóttin í fangelsinu var dýrari heldur en á Waldorf-Astoria hótelinu í New York.  

Klefarnir eru sjúklega litlir! Við urðum fyrir verulegum vonbrigðum með "the shower room". Það var bara allt öðru vísi en í The Rock. Lygar -ekkert nema lygar!!!

Hrefna er að koma í kvöld! :) Til að halda aftur af spennunni ætlum við út að borða og svo í bíó áður en við sækjum hana um miðnættið.

Erik brennd'á sér feisið!


Sviði

Burn baby burn... ahhhh!

Við erum bæði með nokkuð góðan seyðing í húðinni eftir strandardaginn. Við skelltum okkur á Stinson Beach. Þessi strandleiðangur gekk miklu betur en sá fyrri, það var fullkomlega heiður himinn og þægilegur hiti. Ekki séns í helvíti að fara í sjóinn hins vegar.

Það er æði á strönd :) Næst held ég að ég sé tilbúin í miðjarðarhafsstrandarferðalag...

Helgin er búin að vera notaleg. Á laugardaginn fórum við á bændamarkaðinn þar sem við fengum okkur ferskjur í morgunmat. Á eftir fórum við niður í bæ og versluðum glás, stóran poka af fötum á Erik og hrúgu á mig líka :) Í kvöldmat borðuðum við tælenskan mat sem við sóttum á staðinn sem Tommi mælti með.

Í gær fórum við á Giants leik. Okkur gekk ágætlega að læra reglurnar og skemmtum okkur bara mjög vel. Við fengum líka stórar pylsur sem voru geðveikt góðar. Eriks var jafn stór og medister á ráðhústorginu í Köben. Báðar voru með steiktum lauk og súrkáli sem er ótrúlega gott á pulsu. Um kvöldið sóttum við burritos og horfðum svo á Garden State og poppuðum, sweet!

kíkið á myndir, fjögur ný albúm, B out


Long time no see

Sorrí

Það er bara búið að vera svo notalegt og gaman hjá okkur að það hefur alveg gleymst að blogga. (Kannski myndum við blogga oftar ef þið sem eruð að lesa þetta mynduð kommenta oftar..!)

Hér kemur öpdeit:

Sunnudaginn síðasta fórum við í bíltúr til Berkeley þar sem veðrið bauð ekki upp á tennis og sólbað í garðinum eins og venjulega. Okkur langaði að skoða aðeins bæinn og skólasvæðið þar s SanFran-Berkeley-dyro 105 em þetta er einn af skólunum sem við erum að velta fyrir okkur í framhaldsnám, sérstaklega núna þegar við erum farin að ELSKA San Francisco. Þetta var mjög skemmtileg ferð og kampusinn er æðislega fallegur. Við röltum aðeins um í kuldanum og fengum okkur að borða á geðveiku kaffihúsi sem Californiu-bókin okkar mælti með (Lonely Planet bækurnar eru duglegar að mæla með fínum stöðum -yfirleitt, ítalski staðurinn í færslunni hér að neðan féll algjörlega). Í miðbænum var glás af skransölum og fólki sem virtist hafa festst í hassreykingafasanum fyrir tuttugu árum. Annars var mest um ofurvenjuleg og hreinleg háskóla-ungmenni og þar af leiðandi mikið um kaffihús og pítsustaði, bókabúðir og plötubúðir.

Á mánudaginn fórum við í SFMOMA -San Francisco Museum of Modern Art. Það var æðislega gaman. Við sáum Matisse sýninguna sem þeir auglýsa stíft þessa dagana og fannst lítið til koma en " Munkacsi-beduini föstu" listaverkin voru geðveik. Við hrifumst mest af sýningu á ljósmyndum eftir Martin Munkacsi frá fyrri hluta 20. aldar. Hann ferðaðist um allan heim og margar myndir eru frá Afríku, Suður-Ameríku og fleiri framandi stöðum en aðrar ótrúlega hversdagslegar og fallegar. Margar myndir af strandlífi og af fólki á skíðum. Eina myndin sem ég kannaðist við er mynd sem heitir "kaffipása" af tveimur dönsurum í loftfimleikum með kaffibolla í hönd. Endilega googlið hann -geðveikur. Mark Rothko myndin kom skemmtilega á óvart þótt maður hafi séð eftirprentanir (sjá að neðan). Hún er svo risastór og appelsínuguli liturinn er svo fallegur og hlýr að hún er ótrúlega flott og áhrifamikil þegar maður sér hana. (Ætli það séu ekki til 10 tilraunir þar sem hann var bara "nei þetta er ekki alveg tónninn, meira rautt...") René Magritte virðist líka geðveikur. Svo voru líka fyndin verk eins og "indigo" sem er risastórt bretti af gallabuxum og gallaskyrtum á miðju gólfi með skrifborði og stól fyrir framan þar sem kona situr og strokar út úr bók með bleiku strokleðri -pæliði í þeirri vinnu. "Já ég vinn við að stroka út úr bók í SFMOMA." Svo er ein mynd sem heitir "blue" minnir mig -það er risastór strigi sem er allur í sama bláa litnum.

markrothko Verkið sem stendur uppúr (með Munkacsi í heild sinni) er svo eftir Andrew McCall (held örugglega) sem var svona "upplifunarlistaverk". Okkur hefði kannski ekki þótt þetta svona geðveikt nema af því að það var kona sem var svo uppnumin að hún var að benda okkur á að labba inn í ljósið og hreyfa loftið og svona... Vonbrigði ferðarinnar voru að komast að því að stór sýning með verkum eftir Ólaf Elíasson byrjar í september.

Á þriðjudaginn fórum við í dýragarðinn. Veðrið var mjög svo upp og ofan, aðallega ofan, en við fórum út í tveimur peysum hvort og vorum í þeim báðum mestan tímann. Við höfðum lært af Sea World að það sé ekki skemmtilegt að leggja í kringum dýragarða þannig að við tókum sporvagninn. Það voru mikil mistök, við vorum örugglega klukkutíma á leiðinni og bílastæðin voru mörg auð þar sem það var mánudagur og hefðu bara kostað okkur 6 dollara. En eftir ferðina löngu komumst við að því að San Francisco Zoo er frábær dýragarður. Hann er ekki mjög stór en mjög góður. Sérstaklega er hann frábær að því leyti að það er auðvelt að sjá dýrin. Í mörgum dýragörðum er hönnunin eitthvað klúðursleg se SanFran-Berkeley-dyro 261 m leiðir til þess að þú er hérna en dýrin þarna. Ekkert mikið skárra en að horfa bara á Animal Planet heima í sófanum. Og af því að hann er lítill og opinn í stuttan tíma (bara frá 10-5) þá er eins og dýrin hafi meiri þolinmæði fyrir manni. Þau eru svona "ó þú hér, en hvað þú ert skrýtinn eitthvað, gengur þú bara á tveimur fótum? En merkilegt!" Górillurnar voru hreint út sagt forvitnar. Bæði eitt kvendýrið og stóri karlinn voru beinlínis að pósa! (sjá myndir -við erum búin að grisja smá og skrifa við)

Alla vega vorum við himinlifandi með ferðina okkar í dýragarðinn.

Næstu daga tóku við bílferðir um borgina, tennis og sólbað í garðinum, fleiri skemmtilegir veitingastaðir og rólegheit heima.

Í gær keyptum við hjól! Við fórum í Target eftir góða tennisæfingu (við erum að skána -mega gaman) og skemmtum okkur konunglega. Við keyptum hjólið handa mér -við eigum bara eitt hjól og Erik fílar það betur en ég -mig langaði í hjól með mjóum dekkjum. Við keyptum líka hjálma (ég var ekkert sérstaklega spennt fyrir því en Erik fannst það heimskulegt og ég lét mig hafa það), hjólalás, ferðatöskur, kíki, kisukamb, snyrtivörur og málningadót, Will og Grace seríur og fleiri tennisbolta.

Í dag prufukeyrðum við svo hjólið mitt og Erik tók hjólið hennar Hjördísar. Við hjóluðum alla leið í Presidio garðinn nyrst á skaganum og skoðuðum "the Palace" sem er geðveikt flottur garður sem maður hefur séð í t.d. The Rock. Hjólaferðin tók að minnsta kosti klukkutíma hvora leið og við vorum dauð í rassinum og lærunum eftir hana (og fleiri stöðum -það þarf að stilla hnakkinn minn betur). Þegar við höfðum það heim tók slökkviliðið á móti okkur -og við alveg nei!!!! ég þarf að leggjast niður! Ekki mikið að pæla í öllu sem gæti hafa brunnið. Þetta reyndist hins vegar false alarm og eftir að við höfðum skriðið í sturtu fórum við á The Burger Joint sem býr til bestu og ferskustu hamborgara í heimi. Svo heim í rauðvín, osta og Will og Grace.

Lofum að blogga oftar og styttra! Á myndasíðunni er dýragarðurinn, Berkeley og myndir úr daglega lífinu í garðinum.

B


Vín í kvöldmatinn

Síðustu dögum höfum við eytt í að hanga í garðinum, spila tennis, liggja í sólbaði og fara svo í túra um bæinn að skoða hin og þessi hverfi. Í gær fórum við enn og aftur í smá tennis í garðinum. Við erum að skána. Eftir á lögðumst við í sólbað með bækurnar okkar og höfðum það notalegt. Við erum líka að verða brúnni.

Eftir sturtu og smá hangs ákváðum við að drífa okkur út að borða. Við völdum Il Borgo, ítalskan stað í bókinni okkar góðu, sem átti að vera svona í fínni kantinum. Þegar við komum á staðinn urðum við fyrir nokkrum vonbrigðum. Þetta var pínulítill staður og ótrúlega hallærislega innréttaður, með lélegum freskum á veggjunum. Þegar maturinn kom, humarpasta handa Erik og þistilhjartapasta handa mér, urðum við fyrir enn meiri vonbrigðum. Maturinn hefði getað komið úr dós, alla vega var hann mun verri en það sem ég elda upp úr tilbúnu pasta og hunts sósu í dós. Góðu fréttirnar voru að við höfðum pantað heila flösku af hvítvíni og það var bara nokkuð gott. Þegar við komum út af staðnum vorum við lítið mett en nokkuð vel full. Þegar við komum heim héldum við áfram kojufylleríinu og skemmtum okkur konunglega.


3 þumlar upp

Aktívur dagur. Renndum niður nokkrum pönnsum heima um hádegisbilið og fórum síðan á íþróttavörumarkað. Keyptum okkur tennisspaða og reyndum þá í Dolores garðinum. Bylgja reyndist vera með eitraða uppgjöf en fékk á móti að finna fyrir föstu bakhöndinni minni. Komum heim í sturtu áður en við fórum í sushi veislu á Hana Zen. Þúsund þakkir til Tomma fyrir að benda okkur á hann. Eftir það kíktum við á Simpson myndina sem stóð undir væntingum. Bíóið reyndist vera í frekar skuggalegu hverfi. Því fékk tataralegur blökkumaður að labba rétt aftan við okkur. Blessaður maðurinn. Að eigin sögn var hann "a broke black motherfucker". Læstum að okkur þegar við settumst upp í bílinn.

Hitti þarlendan mann í Kínahverfinu í síðustu viku. Var með aukaþumal á hæ. hendi. Benti mér á konu í búðinni og sagðist nota hann til að krækja í skvísurnar. Sú eineygða sem reyndist vera konan hans var á móti hin stoltasta af sínum manni.

kveðja,

Erik


Fækkar á 3rd street

Fjölskyldan mín er að fara heim í nótt. Það er soldið skrýtið. Við erum búin að vera límd saman í næstum fjórar vikur (eða eiginlega í tugi ára -þið þekkið kannski fjölskyldumynstrið...). Við Erik verðum hérna áfram í þrjár vikur. Hrefna vinkona kemur í heimsókn þann 14. og kemur með okkur heim 22.

Í gær versluðum við eins og okkur væri borgað fyrir það. Það markverðasta við þennan dag var að það voru keyptir tveir fullir pokar af fötum á Þórð. Hann stóð í mátunarklefanum og svitnaði við að máta hlaðana af fötum sem við mamma bárum í hann. Risið lækkaði á honum með hverri flík sem við bættum í "kaupa" bunkann. Erik og Þórdís sátu fyrir utan í þægilegum sófum (sem er ekki til að dreifa í kvennadeildinni í Gap, eins skrýtið og það er) og gáfu einkunnir. Þórður þoldi illa þessa athygli og þessa eyðslu í sig. Undir lokin hljóp ég síðasta hring um búðina og kom til baka með fimm boli og peysur í viðbót. Þórður fór næstum að gráta.

Í dag fór Holtsgötufjölskyldan á Union Squere til að kaupa það sem ekki hafði verið keypt síðustu vikuna. Starbucks var einnig hvatt með söknuði. Eftir það fórum við í Golden Gate Park og svo í Dolores Park þar sem við lágum aðeins og köstuðum mæðinni með bjór. Við borðuðum á æðislegum stað við Golden Gate Park, Park Chow, sem er blanda af asískum og ítölskum mat -skrýtið. Hann var ótrúlega næs og maturinn geðveikt góður, nema ég fílaði ekki að borða spaghettílengjur með tælensku bragði. Lasanjað og pastað var hins vegar geðveikt.

Núna snúast þau kringum hvert annað og klippa miða af grilljón fötum og rífast um hver fær hvaða tösku. Og ég mun sakna þeirra.

B


Hin fjögur fræknu í leit að gralnum

Í dag fór hin upprunalega Holtsgötufjölskylda í sólbaðsferð. Erik er ennþá veikur svo hann var heima að lesa Harry Potter. Í gær fórum við fjögur líka án hans og hjóluðum Golden Gate brúna og tókum ferjuna til baka. Erik er kominn rosalega langt í Harry Potter.

Sólbaðsferðin varð eins konar leit að hinum heilaga gral. Við keyrðum norður yfir brúna (í aðeins minni þoku en í gær) og áfram til Stinson Beach. Það var aðeins lengri leið en við héldum. Við hittum fyrir gamlan vin, þjóðveg númer eitt. Hann var örmjór og ferlega hlykkjóttur. Við urðum öll bílveik. Þegar á ströndina var komið þá var þar heimskautaveður (alla vega þegar maður ætlar að vera á bikiníinu). Við borðuðum nesti á borði aðeins frá ströndinni og var ógeðslega heitt. Þegar við vorum búin að borða vorum við orðin alveg viss um að það hlyti að vera líka heitt á ströndinni. Það var ekki.

Við keyrðum aftur til baka og reyndum við China Beach -sem er næsta strönd við Baker Beach í San Francisco. Hún var vandfundin innan um mjög stór og ríkmannleg hús með ljónum fyrir utan. Þegar hún var fundin urðum við fyrir vonbrigðum. Þar var þoka og rok.

Næst keyrðum við í garðinn góða sem við Erik vermdum í fyrradag ef ég man rétt. Það var þetta líka fína sólbaðsveður, algjör steik og allir strippuðu niður á bikiníið (Þórður tók sig sérstaklega vel út í sínu). Til að skola niður vonbrigðunum yfir að hafa verið á ferðalagi í fjóra klukkutíma og vera fyrst að komast í sólbað klukkan 3 fengu foreldrarnir sér bjór, ég kók og Þórdís vatn (við vorum mispirruð).

Eftir þrjá tíma í góðri steik með slúðurblöð, jarðarber og bjór fórum við aftur í Ragnar (bílinn Tomma og Hjördísar) og keyrðum upp í hæðirnar til Twin Peaks. Á tímabili héldum vð að Ragnar réði ekki við brekkurnar, þær voru svo svakalegar. Þórdís og mamma voru soldið hræddar í aftursætinu þegar ég skipti úr öðrum niður í fyrsta.

Uppi á Twin Peaks var svakalegt útsýni yfir borgina eins og hún leggur sig -það er að segja það af henni sem er austan við Twin Peaks því rest var fullkomlega hulið þoku. Þegar ég flyt til San Francisco þá ætla ég að fá mér íbúð í austurhlutanum.

Svo komum við heim og ég eldaði pasta. Það var ágætt en ekki jafn gott og heima -aðrir sósu- og pastaframleiðendur (ég elda alltaf úr pökkum og svo set ég smá auka krydd eða hvítlauk og tekst að líða eins og meistarakokki). 

Holtsgötufjölskyldan er alveg að yfirgefa okkur! Ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn.


Ha?

Ég get ekki lýst súrrealískunni við að vakna við það að Erik og Þórður séu að tala um skotárás í Reykjavík sem endar með sjálfsmorði á Þingvöllum. Ég hélt að mig væri ennþá að dreyma.

Ótrúlegt alveg hreint. Ég verð að horfa á kvöldfréttirnar með hádegismatnum til að trúa því að þetta hafi gerst á landinu mínu. Og að lögregluna hafi strax grunað hver hafi skotið manninn af því að hann hafi nýlega tekið saman við fyrrverandi eiginkonu hans -er það skotleyfi? Eitthvað hlýtur að hafa gengið á.

B


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband